Thursday, November 03, 2005

Siðaskiptin


Upphaf Siðaskiptana má rekja til þess að prestur að nafni Luther stóð upp og andmælti sölu aflátsbréfa árið 1517, en kirkjan hóf sölu þeirra til að fjármagna endurreisn Péturskirkjunar í Róm sem var mjög kostnaðarsamt. Luther hóf þar með ferli sem klauf Kaþólsku kirkjuna sem var voldugasta stofnun Evrópu og jafnvel heimsins á miðöldum. Hann þýddi Biblíuna yfir á móðurmál sitt, þýsku, því hann vildi að messur yrðu fluttar á móðurmáli sóknarbarna. Ýmislegt annað setti Lúther út á í fari kirkjunar. Það helsta annað sem hann vildi breyta var að prestar þyrftu ekki að lifa einlífi, hætt var að tilbiðja dýrlinga, þjóðhöfðingjar hvers lands yrði yfirmaður þjóðkirkju í sínu landi og að fólk mundi ekki lifa klausturlífi. Allt þetta stuðlaði að brjóta niður vald hinnar smjög svo spiltu Kaþólsku kirkju og auka stuðning við siðaskipti kirkjunar meðal þjóðhöfðingja og almennings. Átti siðaskiptin ágætu fylgi að fagna meðal ýmisa kónga og fursta norður Evrópu, sem sáu tækifæri til að auka völd sín og ríkidæmi með því að sölsa undir sig eignir klaustra og kaþólsku kirkjunar. Helstu löndin sem voru fylgjandi Siðaskiptunum voru England, Skotland, Niðurlönd, Sviss, Norður-Þýskaland og svo Norðurlöndin. En Siðaskiptin fóru ekki friðsamlega fram því mörg blóðug stríð voru háð milli Mótmælenda og Kaþólikka. Það átti einnig við um Ísland því kristintakan árið 1000 var friðsamlegri heldur en Siðaskiptin.

Þýskir Hansakaupmenn voru áberandi í verslu hér á landi á 16.öld og kynntust margir Íslendingar mótmælendatrú frá þeim, og reistu þeir fyrstu lúthersku kirkjuna í Hafnarfirði árið 1537. Tíðar skipaferðir voru milli Íslands og Þýskalands á þessum tíma, og fóru margir Íslendigar í nám þar. Í danmörku kom til valda árið 1536 Kristján III eftir stutta borgarastyrjöld þar sem hann naut stuðnings luthertrúarmanna, og kom hann á siðaskiptum í Danmörku. Þar sem Ísland var undir danska ríkinu ætlaði hann að koma á mótmælendatrú hér á landi. Með því að koma á siðaskiptum á var hann einnig að auka völd sín og auð, því kaþólska kirkjan var voldug og rík. Á Íslandi voru biskuparnir tveir í Skálholti og á Hólum voldugustu mennirnir á landinu. Einnig átti kaþólska kirkjan, biskupsstólarnir og klaustrin, stóran hluta af öllum jörðum á Íslandi. Vorið 1539 réðist hirðmaður konungs á klaustrið í Viðey með vopnavaldi og rændi það. En síðar um sumarið voru árasarmennirnir drepnir að undirlagi Ögmundar Pálssonar Skálholtsbiskups og einnig voru þeir sem eftir lifðu dæmdir réttdræpir hvar sem í þá næðist. Ögmundur Skálholtsbiskup barðist á móti nýrri kirkjuskipan af öllu afli en var svo handtekinn og sendur út til Danmerkur og dó hann á leiðinni út. Með dauða hans kom á biskupsstól Gissur Einarsson. Hann var ungur prestur sem lært hafði í Þýskalandi og var studdi siðaskiptin. Hann var vígður Skálholtsbiskup árið 1542 og þar var lúthersk kirkjuskipan samþykkt. En Jón Arason Hólabiskup barðist en á móti hinni nýju kirkjuskipan. Friður hélst þó milli biskupsdæmana þangað til að Gissur biskup lést árið 1548. Þá vígir Danakonungur Martein Einarsson Skálholtsbiskup og lýsir Jón Arason útlægan og skipar íslenskum stórbónda að nafni Daða í Snóksdal að handsama hann og syni hans. Biskupinn og synir hans fóru þá um landið með vopnavaldi og ógnuðu þeim sem voru fylgjandi siðaskiptum. Fóru þeir með vopnaða sveit að Skálholti og náðu þeir á vald sitt Marteini biskup og höfðu hann í haldi, einnig reyndu þeir að ná Daða en hann slapp. Svo tókst Daða að handsama Jón biskup og syni hans þegar ein af herförum þeirra mistekst og þeir eru ofurliði bornir. Hann fer með þá til Skálholts þar sem þeir eru hálshöggnir án dóms og laga af ótta við að reynt yrði að frelsa þá. Eftir þetta er öll andstaða þið siðaskiptin búinn og eru þau samþykkt fyrir allt landið á Alþyngi árið 1550.

1 Comments:

Blogger Askinstoo said...

Nice Blog!!!   I thought I'd tell you about a site that will let give you places where
you can make extra cash! I made over $800 last month. Not bad for not doing much. Just put in your
zip code and up will pop up a list of places that are available. I live in a small area and found quite
a few. MAKE MONEY NOW

6:27 AM  

Post a Comment

<< Home