Thursday, November 03, 2005

Kristin trú

Kristin trú er byggð á Gyðingatrú sem á rætur sínar að rekja til frjósama hálfmánans eins og svæðið var kallað fyrir botni miðjarðarhafs sem náði frá Egyptalandi til Mesópótamíu, sem heitir Írak í dag. Hversu gömul Gyðingatrúin er er vont að segja um en Abraham ættfaðir Gyðinga var uppi um árið 2000 fyrir krist. Eldri sögulegar heimildir eru af skornum skammti en þó eru til höggmyndir af nöktum manni, konu og höggormi sem eru frá því um árið 3500 fyrir krist.
Gyðingar voru dreifðir í fyrstu en um árið 1400 fyrir Krist mun Móse hafa sameinað og leitt þá til “fyrirheitna landsins” samkvæmt Biblíunni.

Eiginleg kristin trú varð til um árið 30 eftir krist þegar Jesús fór að predika.
Mektamenn innan Gyðingakirkjunnar voru ekki sérlega hrifnir af því að hér væri kominn maður sem sagðist vera sonur Guðs. Jesús boðaði dómsdag og upprisu dauðra. Auk þess gagnrýndi hann prestastéttina, sem hann taldi vera komna villu vegar frá hinni sönnu trú á Guð sem hann sagði að væri hinn kærleiksríki faðir sem fyrirgæfi syndir manna ef þeir iðruðust og bæðusts fyrirgefningar. Samkvæmt boðskapi hans voru allir menn jafnir og mundu verða dæmdir á dómsdegi eftir gerðum sínum en ekki eftir efnum eða ætterni. Annað sem Jesús sagði var að þeir sem væru ekki með honum væru á móti honum. Þetta stillti mönnum sem ekki vildu taka einarða afstöðu með eða á móti honum upp við vegg.
Jesús var síðan krossfestur aðeins nokkrum árum eftir að hann var farinn að predika en á krossinum bað hann Guð um miskunn fyrir böðla sína á þeim forsendum að þeir vissu ekki hvað þeir gerðu. Átti hann sennilega við alla menn.
Jesús hafði 12 lærisveina og 11 þeirra héldu uppi merkjum hans og útbreiddu trúna eftir lát hans. Sá 12. Júdas sveik Jesús í hendur Rómverjum og iðraðist síðan og hengdi sig.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home