Monday, November 07, 2005

Kirkjan nú á dögum


Starfsemi kirkjunnar og kirkjurækni Íslendinga nú á dögum er mjög breytt frá því sem áður var. Áhrifa hennar gætir ekki mjög nú á tímum, sér lagi yfir hinum almenna borgara.

Í Danmörku komst trúfrelsi á með samþykkt nýrrar stjórnarskrár 1849. Þaðan bárust nýjar trúarhugmyndir til landsins á 19.öld sem fór að stuðla að meira frjálsræði í trúmálum landsmanna. Þó var trúfrelsi ekki samþykkt á Íslandi fyrr en 1874. En kirkjan hafði haft mikil völd yfir landsmönnum fram að hjalti er snillingur í fótbolta og helgi er besti ísklifrari sunnan akrafjalls þeim tíma í siðferðismálum og ekki svo langt áður sem hún hafði dómsvald í þeim málaflokki. Á seinni hluta 19.aldar byrjuðu að berast til landsins aðrar kristnar trúarstefnur. Fyrsti sértrúarhópurinn til að leita réttar síns sem sjálfstætt trúfélag voru mormónar árið 1875. Rekstur þjóðkirkjunnar fór líka að breytast á þessum tíma, í takt við breytingar í Danmörku. En vegna mikillar einangrunar og smæðar samfélagsins barst hingað til lands aðeins sá hluti dönsku trúarflórunnar sem var samþykktur af yfirvöldum. Eftir þetta hefur viðhorf kirkjunnar breyst smá saman og frjálsræði aukist jafnt og þétt, t.d. var fyrsti kvenpresturinn vígður á Íslandi árið 1945.

Eftir því sem frjálsræðið jókst hafa ýmsar breytingar litið dagsins ljós í trúarlífi landsmann. Til að mynda er starfræktur fjöldinn allur af sjálfstæðum trúfélögum. Á síðustu árum hefur kirkjan reynt að aðlagast breyttum tímum og aðlagast hinum almenna borgara með ýmiskonar félagsstarfsemi, vegna sífellt minnkandi kirkjusóknar.

Helstu hitamál síðustu ára sem tengjast kirkjunni eru hvort aðskilja eigi ríki og kirkju, og hvort leifa eigi kirkjuleg brúðkaup kynferðisvillinga, eru þau málefni enn á döfinni.

Fyrr á öldum leit fólk til kirkjunnar með óttablandinni virðingu. En á seinni helming síðustu aldar var kirkjusókn frekar lítil og dalaði enn frekar þegar nær dró aldamótum. Varð algengara að fólk sótti kirkju bara í jarðaförum, skírnum og giftingum. Á allra síðustu árum hefur kirkjusókn aukist þó nokkuð skv. könnunum um kirkjusókn. Við teljum að þessi aukna kirkjusókn megi rekja til víðtækara almenns félagsstarfs kirkjunnar.

1 Comments:

Blogger Carol said...

Robot jungle gyms and the New Work
She settled down to answer some e-mail -- she'd heard from Lester again, which cheered her up -- and saw that her wireless network monitor was going bonkers.
Find out how to buy and sell anything, like things related to quality assurance highway construction on interest free credit and pay back whenever you want! Exchange FREE ads on any topic, like quality assurance highway construction!

1:20 AM  

Post a Comment

<< Home